Mánudagur, 30. ágúst 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Durant frábær í þriðja sigri Bandaríkjamanna

Mynd: Nordic Photos

Kevin Durant skoraði 27 stig fyrir Bandaríska landsliðið er það vann þriðja leik sinn á heimsmeistaramótinu í körfubolta. Liðið lagði Brasilíu 70-68 í æsispennandi leik. Leonardo Barbosa bakvörður brassanna fékk tækifæri til að jafna leikinn en skot hans geigaði um leið og leiktíminn rann út.

Flestar stærstu stjörnurnar létu sig vanta í bandaríska hópinn á þessu móti en Durant er alls ekki einmanna og hefur farið á kostum á mótinu til þessa. Chauncey Billups hefur einnig verið góður en hann gerði fimmtán stig í leiknum.

Bandaríkin hafa nú þegar tryggt sér efsta sæti í riðlinum þrátt fyrir að eiga tvo leiki eftir. Liðið er því til alls líklegt en Bandaríkjamenn hafa ekki unnið þennan titil síðan 1994 þegar Shaquille O´Neal var valinn leikmaður mótsins.