Miðvikudagur, 1. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Eden mótið í Hveragerði

Eden mótið sem er æfingamót í körfuknattleik  fór fram í Hveragerði dagana 25.-29. ágúst kláraðist á sunnudaginn með tveim leikjum.

Hamar sigraði mótið eftir góðan sigur á Haukum, FSU endaði í öðru sæti, Þór í því þriðja og Haukar í fjórða, en Semaj Inge spilaði ekki með Haukum á mótinu.

Þór og FSU háðu hörkuleik sem endaði með sex stiga sigri Þór, 63-57.  Þór var með átta stiga forystu í hálfleik. Í seinni hálfleik var mikill varnaleikur hjá báðum liðum en Þórsarar voru betri og komust í þægilega forystu, 54-38. FSU gáfust þó ekki upp og minnkuðu muninn í 63-57. Sighæstir í liði Þór voru Emil Einarsson með 21 stig og Bjarki Gylfason með 14 stig. Stigahæstu menn FSU voru Orri Jónsson með 17 stig og Sæmundur Valdimarsson með 11 stig.

Hamar og Haukar var ekki eins spennandi leikur en Hamarsmenn sigruðu nokkuð öruggt, 84-70. Í hálfleik var Hamar yfir með tuttugu stigum. Stigahæstir hjá Hamri voru Ragnar Nathelsson og Darri Hilmarsson með 15 stig hvor. Hjá Haukum var Davíð Páll Hermannsson stigahæstur með 17 og Örn Sigurðsson var með 16 stig.

Lokastaða á Edenmótin
1 sæti Hamar 6 stig
2 sæti Fsu 2 stig
3 sæti Þór 2 stig
4 sæti Haukar 2 stig