Miðvikudagur, 1. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Njarðvík fékk góðan liðsstyrk

Mynd: Hilmar Þór

Njarðvíkingar voru að styrkja sig fyrir komandi leiktíð í Iceland Express deild karla í körfuknattleik. Leikmaðurinn sem þeir voru að næla sér í er frá Bandaríkjunum og heitir Antonio Houston. Houston kemur frá Catawba háskólanum.

Sport.is setti sig í samband við Sigurð Ingimundarson þjálfara Njarðvíkur og spurði hann út í leikmanninn.

Aðspurður hvort hann geti gæti eitthvað um leikmanninn hafði hann þetta að segja “Það er nú ekki mikið að segja, þetta er bara strákur sem var að klára skóla, og veit ég nú ekki meira en það. En við sjáum til, hann er 23 ára. Hann á nú ennþá eftir að koma til Njarðvíkur, en það er von á honum á næstunni.”

Sigurður sagði einnig að það sé ekki stefnan að bæta við fleirum leikmönnum fyrir tímabilið.

“Við eigum eftir að klára hópinn og svona, en það er nú alltaf stefnan í þessu liði að fara alla leið, það er ekkert öðruvísi. Einsog staðan er núna þá lýtur þetta vel út, það á bara eftir að púsla þessu svolítið saman, svo það verður gaman að sjá hvernig þetta endar. Það er nú ennþá svolítið langt í mót,  svo við erum bara spenntir fyrir þessu.” Sagði Sigurður þegar hann var spurður út í markmið liðsins fyrir tímabilið.

Njarðvík hafa misst þá Magnús Gunnarsson til Danmerkur og Friðrik Stefánsson hefur ekki enn gert upp hug sinn hvað hann muni gera í vetur, en hann hefur ekki æft með Njarðvík í sumar.