New York Knicks hefur samið við Patrick Ewing jr. Ewing yngri var valinn nr. 43 í nýliðavalinu árið 2008 af Sacramento. Hann endaði hjá New York í leikmannaskiptifléttu og eyddi öllu 2008-09 tímabilinu í D-deildinni. Í fyrra missti hann af öllu tímabilinu vegna meiðsla.
Ewing yngri er stór framherji en hann lék með New York í sumardeildinni í sumar. New York er nú með 15 leikmenn á samning.
Patrick Ewing jr. mun núna ganga í fótspor föður síns, Patrick Ewing.
Flestir ættu að muna eftir föður Patrick Ewing jr., sem er stjörnumiðherjinn Patrick Ewing sem gerði garðinn frægan með Knicks á níunda og tíunda áratug síðsutu aldar. Ewing lagði skóna á hilluna 2003.
Patrick Ewing gamli er núna aðstoðaþjálfari Orlando Magic.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook