Fimmtudagur, 2. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Reykjanescup verður um helgina

Körfuknattleiksdeildir Grindavíkur, Keflavíkur og Njarðvíkur standa annað árið í röð fyrir Reykjanescup Invitational-mótinu sem stendur yfir samhliða Ljósnæturhátíðinni í Reykjanesbæ.  Auk Suðurnesjaliðanna taka þátt ÍR, Fjölnir og tvöfaldir meistarar síðasta árs, Snæfell.

Leikið eru í þremur húsum á þremur dögum og hefst mótið í Grindavík. Þau lið sem standa best að vígi eftir tvo leiki leika til úrslita. Hin liðin munu leika um þriðja til sjötta sæti.

Leikjaplan mótsin er sem hér segir:

Fimmtudagur 2. september í Grindavík
Kl. 17.00 Grindavík – Fjölnir
Kl. 19.00 Njarðvík- Snæfell
Kl. 21.00 Keflavík – ÍR

Föstudagur 3. september í Keflavík
Kl. 17.00 Keflavík – Njarðvík
Kl. 19.00 Snæfell – Fjölnir
Kl. 21.00 Grindavík – ÍR

Sunnudagur 5. september í Njarðvík
Kl. 14.00 leikur um 5. sætið
Kl. 16.00 leikur um 3. sætið
Kl. 18.00 Úrslitaleikurinn