Þriðjudagur, 7. september 2010 | Karfan .is | karfan@karfan.is

HM í körfu | Litháen og Argentína síðust inn í 8-liða úrslit

Mynd: FIBA

Tveimur síðustu leikjunum í 16 liða úrslitum Heimsmeistarakeppninnar í Tyrklandi var að ljúka í dag þar sem Litháen og Argentína tryggðu sér tvö síðustu sætin. Litháar lögðu Kínverja og Argentínumenn höfðu betur í stórslag dagsins gegn erkifjendum sínum frá Brasilíu.

Litháen 78-67 Kína
Linas Kleiza var atkvæðamestur í liði Litháa með 30 stig og 9 fráköst en hjá Kínverjum var Wei Liu leikmaður Shanghai Sharks stigahæstur með 21 stig og 3 stoðsendingar.

Argentína 93-89 Brasilía
Luis Scola heldur áfram að leiða Argentínu menn en hann setti niður 37 stig í kvöld og tók 9 fráköst. Hjá Brasilíu var Marcelo Huertas atkvæðamestur með 32 stig.

8-liða úrslit hefjast strax á morgun með tveimur leikjum en svona munu þau líta út:
Miðvikudagur 8. september:
Serbía-Spánn
Tyrkland-Slóvenía

Fimmtudagur 9. september
Bandaríkin-Rússland
Litháen-Argentína