Þriðjudagur, 7. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

HM í körfubolta | Bandaríkjamenn og Rússar í 8-liða úrslit

Mynd: NordicPhotos

Tveir leikir voru á dagskrá HM í körfubolta í Tyrklandi í gær. Bandaríkin gjörsigruðu Angóla og Rússar unnu Ný-Sjálendinga og sigurliðin tryggðu sér þar með sæti í 8-liða úrslitunum. Þar bætast Bandaríkjamenn og Ný-Sjálendingar í hóp Serba, Spánverja, Slóvena og Tyrkja, en 16-liða úrslitin klárast í dag með leikjum Litháa og Kínverja annars vegar og Argentínumanna og Brasilíumanna hins vegar.

Bandaríkin 121-66 Angóla
Lið Bandaríkjamanna var ekki í vandræðum með Angóla í 16-liða úrslitunum og unnu sannfærandi sigur, 121-66. Leiktíma var skipt jafnt á milli leikmanna í bandaríska liðinu en Derrick Rose og Eric Cordon fengu þó lengstan spilatíma.  Þeir léku 21 mínútu hvor af þeim 40 mínútum sem í boði voru. Chauncey Billups var stigahæstur í liði Bandaríkjanna með 19 stig, en 18 þessara stiga skoraði hann úr þriggja stiga skotum. Þrír leikmenn skoruðu 17 stig, en það voru þeir Rudy Gay, Kevin Durant og Eric Cordon.

Rússland 78-56 Nýja-Sjáland
Í hinum leik gærdagsins unnu Rússar sigur á Ný-Sjálendingum, 78-59. Nýja-Sjáland byrjaði leikinn betur og komst í 9-2 en Rússarnir jöfnuðu strax í 11-11. Í öðrum leikhluta var staðan 21-16 fyrir Nýja-Sjáland, en Rússarnir leiddu svo í hálfleik, 31-27. Sigur Rússa varð svo vís í þriðja leikhluta eftir góðan 13-0 sprett. Andrey Vorontevich var stigahæstur Rússa með 18 stig og Timofey Mozgov skoraði 16 stig. Hjá Nýja-Sjálandi var Krik Penney stigahæstur með 21 stig og Thomas Abercrombie skoraði 13 stig.

Bandaríkjamenn og Rússar mætast því í 8-liða úrslitum á fimmtudaginn.