Yvan Mainini, forseti franska körfuknattleikssambandsins, var í gær kjörinn forseti FIBA á heimsþinginu sem fer fram í Tyrklandi þessa dagana. Hann er ellefti maðurinn sem gegnir þessu embætti. Álfursamböndin fimm, Evrópa, Ameríka, Asía, Afríka og Eyjaálfa, hafa skipt með sér embættinu á milli þinga sem haldin eru á fjögurra ára fresti. Yvan Mainini tekur við af Bob Elphinston, sem er forseti ástralska körfuknattleikssambandsins.
Mainini var einróma valinn forseti FIBA en hann hefur gegnt ýmsum ábyrgðarstörfum innan sambandsins. Hann hefur t.d. setið í aðalstjórn FIBA og var forseti FIBA Europe á árunum 1998-2001. Þá hefur hann einnig sinnt stöfum fyrir Olympíunefnd Frakka.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook