Föstudagur, 27. janúar 2012 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is

IE-deild karla | Toppliðin misstigu sig ekki í kvöld

Mynd: Víkurfréttir

Þrír leikir voru á dagskrá í Iceland Express deildinni í körfubolta í kvöld. Keflvíkingar sóttu góð stig á Krókinn, Stjarnan vann á Hlíðarenda og Grindvíkingar héldu sigurgöngu sinni áfram þegar að þeir tóku á móti Fjölni. Það var frábær þriðji leikhluti heimamanna í Grindavík sem að tryggði þeim 107-73 sigur á Fjölni. Með þessum sigri juku Grindvíkingar forskot sitt á toppi deildarinnar á 6 stig. Þeir hafa aðeins tapað einum leik í vetur. Valsmenn náðu ekki að vinna sinn fyrsta leik í deildinni í vetur þegar að þeir fengu spræka Stjörnumenn í heimsókn. Stjarnan hóf leikinn af miklum krafti og var 53-33 yfir í hálfleik. Það dugði þeim til sigurs og voru lokatölur 71-96. Stjarnan deilir nú 2. sætinu í deildinni með Keflavík, en bæði lið hafa 18 stig.

Tindastóll-Keflavík 72-91 (20-25, 14-25, 8-21, 30-20)

Tindastóll:
Maurice Miller 15, Friðrik Hreinsson 15/6 stoðsendingar, Svavar Atli Birgisson 14/4 fráköst, Curtis Allen 8/6 fráköst/6 stolnir, Loftur Páll Eiríksson 6, Helgi Rafn Viggósson 6/5 fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 5/4 fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 2/5 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 1, Myles Luttman 0, Rúnar Sveinsson 0, Hreinn Gunnar Birgisson 0.
Keflavík:
Magnús Þór Gunnarsson 25/10 fráköst, Valur Orri Valsson 20, Jarryd Cole 15/9 fráköst, Halldór Örn Halldórsson 14/8 fráköst, Charles Michael Parker 9/9 fráköst/5 stoðsendingar, Almar Stefán Guðbrandsson 6/4 fráköst, Kristoffer Douse 2, Ragnar Gerald Albertsson 0, Hafliði Már Brynjarsson 0, Sigurður Friðrik Gunnarsson 0, Guðmundur Auðunn Gunnarsson 0, Gunnar H. Stefánsson 0.

Grindavík-Fjölnir 107-73 (29-25, 21-16, 31-16, 26-16, 0-0)

Grindavík: J’Nathan Bullock 26/17 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 17/5 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 14, Giordan Watson 11/4 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 10/10 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 9, Ryan Pettinella 9/7 fráköst, Þorleifur Ólafsson 5/5 stoðsendingar, Björn Steinar Brynjólfsson 5, Ólafur Ólafsson 1, Þorsteinn Finnbogason 0, Ármann Vilbergsson 0.
Fjölnir: Björgvin Hafþór Ríkharðsson 19/4 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 16, Nathan Walkup 13/9 fráköst, Calvin O’Neal 13, Jón Sverrisson 10/7 fráköst, Trausti Eiríksson 2, Daði Berg Grétarsson 0, Gunnar Ólafsson 0, Gústav Davíðsson 0, Haukur Sverrisson 0, Tómas Daði Bessason 0.

Valur-Stjarnan 71-96 (13-26, 20-27, 23-22, 15-21)

Valur: Ragnar Gylfason 14, Igor Tratnik 13/6 fráköst, Birgir Björn Pétursson 13/8 fráköst, Austin Magnus Bracey 13, Alexander Dungal 6, Kristinn Ólafsson 4, Hamid Dicko 3, Benedikt Blöndal 3, Bergur Ástráðsson 2, Sigurður Skúli Sigurgeirsson 0, Hlynur Logi Víkingsson 0, Ágúst Hilmar Dearborn 0.
Stjarnan: Renato Lindmets 20/7 fráköst, Keith Cothran 16, Marvin Valdimarsson 15, Jovan Zdravevski 13, Justin Shouse 11/9 stoðsendingar, Guðjón Lárusson 8, Fannar Freyr Helgason 7/5 fráköst, Sigurjón Örn Lárusson 2, Magnús Bjarki Guðmundsson 2, Dagur Kár Jónsson 2, Christopher Sófus Cannon 0, Aron Kárason 0.