Einn leikur var á dagskrá í Iceland Express deild kvenna í dag. Keflavíkurstúlkur styrktu stöðu sína á toppnum þegar að þær sóttu tvo puntka í Dalhús. Heimastúlkur í Fjölni máttu sín lítið gegn efsta liði deildarinnar og fóru leikar þannig að Keflavík vann, 93-69.
Fjölnir 69-93 Keflavík (21-27, 17-25, 17-21, 14-20)
Keflavíkurstúlkur áttu ekki í teljandi vandræðum með Fjölnir þegar að liðin mættust í dag í Grafavoginum. Leiknum lauk með 24 stiga sigri gestanna, 69-93. Keflavík vann alla fjóra leikhlutanna og leiddu með 16 stigum í hálfleik. Stigahæst hjá Keflavík var Pálína Gunnlaugsdóttir með 30 stig en Brittney Jones skoraði 22 stig fyrir Fjölnir. Með þessum sigri eykur Keflavík forskot sitt á toppi deildarinnar í 4 stig. Þær hafa 36 stig en grannar þeirra í Njarðvík 32. Fjölnir situr hinsvegar í neðsta sæti deildarinnar með 10 stig.
Stig Fjölnis: Brittney Jones 22/8 fráköst/5 stoðsendingar/7 stolnir/3 varin skot, Jessica Bradley 18/5 fráköst, Bergdís Ragnarsdóttir 12/5 fráköst, Katina Mandylaris 10/13 fráköst, Birna Eiríksdóttir 2, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2, Dagbjört Helga Eiríksdóttir 2, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 1, Margrét Helga Hagbarðsdóttir 0, Erla Sif Kristinsdóttir 0, Erna María Sveinsdóttir 0, Eva María Emilsdóttir 0.
Stig Keflavíkur: Pálína Gunnlaugsdóttir 30/6 stolnir, Jaleesa Butler 24/11 fráköst/9 stoðsendingar/9 stolnir/6 varin skot, Sara Rún Hinriksdóttir 16, Shanika Chantel Butler 9/8 stoðsendingar, Lovísa Falsdóttir 4, Helga Hallgrímsdóttir 4, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 4, Telma Lind Ásgeirsdóttir 2, Sandra Lind Þrastardóttir 0, Katrín Fríða Jóhannsdóttir 0, Hrund Jóhannsdóttir 0/4 fráköst, Aníta Eva Viðarsdóttir 0.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook