Sunnudagur, 12. febrúar 2012 | Þröstur Ernir Viðarsson | throstur@sport.is

IE-deild karla | Þór Þ vann í Garðabæ | Njarðvík og Haukar á sigurbraut

Mynd: Hilmar Þór

Sextánda umferð Iceland Express deildar karla í körfuknattleik hófst í kvöld með þremur leikjum. Þór Þorlákshöfn gerði góða ferð til Garðabæjar og lagði Stjörnuna að velli, 88-80. Njarðvík vann Snæfell á heimavelli, 88-78, og Haukur höfðu betur gegn Fjölni í Grafarvogi, 79-68.

Þetta var annar sigur Þórsara í röð sem eru komnir upp að hlið Stjörnunar í deildinni. Stjarnan hefur hins vegar tapað tveimur leikjum í röð. Grindavík er sem fyrr á toppi deildarinnar með 28 stig en KR, Stjarnan, Keflavík og Þór Þorlákshöfn hafa öll 20 stig í næstu sætum.

Úrslit og tölfræði úr leikjum kvöldsins:

Stjarnan 80-88 Þór Þorlákshöfn (21-27, 19-22, 16-14, 24-25)
Stjarnan: Justin Shouse 32/4 fráköst/6 stoðsendingar, Renato Lindmets 20/9 fráköst, Keith Cothran 12/6 fráköst, Guðjón Lárusson 8/6 fráköst, Marvin Valdimarsson 4/7 fráköst/5 stoðsendingar, Jovan Zdravevski 2/4 fráköst, Sigurjón Örn Lárusson 2/2 fráköst.
Þór Þ: Matthew Hairston 23/16 fráköst/3 stoðsendingar, Blagoj Janev 22/9 fráköst, Darrin Govens 20/2 fráköst/7 stoðsendingar, Darri Hilmarsson 12/4 fráköst/4 stoðsendingar, Guðmundur Jónsson 7/4 fráköst/4 stoðsendingar, Baldur Þór Ragnarsson 4/5 fráköst/2 stoðsendingar.

Fjölnir 68-79 Haukar (14-27, 13-19, 19-15, 22-18)
Fjölnir: Calvin O’Neal 20/7 fráköst, Nathan Walkup 17/15 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 14, Jón Sverrisson 8/5 fráköst, Daði Berg Grétarsson 6, Hjalti Vilhjálmsson 3.
Haukar: Emil Barja 16/4 fráköst, Hayward Fain 14/13 fráköst, Örn Sigurðarson 12/5 fráköst, Christopher Smith 11/10 fráköst, Helgi Björn Einarsson 10/7 fráköst, Steinar Aronsson 5, Alik Joseph-Pauline 4, Davíð Páll Hermannsson 4, Haukur Óskarsson 3.

Njarðvík 88-78 Snæfell (24-18, 22-21, 19-25, 23-14)
Njarðvík: Cameron Echols 41/16 fráköst, Travis Holmes 29/4 fráköst/5 stoðsendingar, Maciej Stanislav Baginski 8, Páll Kristinsson 4/6 fráköst, Elvar Már Friðriksson 2/5 stoðsendingar, Hjörtur Hrafn Einarsson 2/5 stoðsendingar, Óli Ragnar Alexandersson 2/6 stoðsendingar.
Snæfell: Quincy Hankins-Cole 18/13 fráköst, Sveinn Arnar Davidsson 17/4 fráköst, Marquis Sheldon Hall 16, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 9/5 stoðsendingar, Hafþór Ingi Gunnarsson 6, Ólafur Torfason 5/4 fráköst, Jón Ólafur Jónsson 4, Óskar Hjartarson 3.

Staðan í deildinni:

1. Grindavík 14/1 28
2. KR 10/5 20
3. Stjarnan 10/6 20
4. Keflavík 10/5 20
5. Þór Þorlákshöfn 10/6 20
6. Snæfell 9/7 18
7. Fjölnir 7/9 14
8. Njarðvík 7/9 14
9. ÍR 6/9 12
10. Tindastóll 6/9 12
11. Haukar 4/12 8
12. Valur 0/15 0