Mánudagur, 4. mars 2013 | Karfan .is | karfan@karfan.is | á Twitter

Dominos-deild karla | Gunnar rekinn frá KR

Mynd: Karfan.is

Gunnar Sverrisson hefur verið látinn fara sem aðstoðarþjálfari KR í Domino´s deild karla. Þetta staðfesti Gunnar í samtali við Karfan.is en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Í framhaldi af því að vera sagt upp störfum við meistaraflokki óskaði Gunnar eftir því að hætta þjálfun tveggja yngri flokka hjá félaginu.

Karfan.is ræddi við á formann KKD KR, Böðvar Guðjónsson, og hann tjáði síðunni að Finnur Freyr Stefánsson, sem einnig er þjálfari kvennaliðs KR, muni taka við daglegri þjálfun liðsins og stjórnun í leikjum.

,,Finnur Freyr tekur við daglegri þjálfun og stjórnun í leikjum og með því erum við að létta af Helga. Hann getur þá einbeitt sér að því að æfa og spila körfubolta. Gunnar hefur verið aðstoðarþjálfari Helga og því eðlilegt að hann stígi frá á sama tíma og Finnur komi inn með sínar áherslur," sagði Böðvar og kvað gengi liðsins ekki í takt við það sem fólk á að venjast í Vesturbænum.

,,Því var nauðsynlegt að setja inn nýjan mann með breyttar áherslur sem vonandi skila sér í betra gengi liðsins."