Eins og Sport.is greindi frá fyrr í morgun bauð Magic Johnson, fyrrum körfuboltakappi og núverandi sjónvarpsmaður hjá ESPN, einum besta leikmanni NBA deildarinnar 1 milljón dollara fyrir það að taka þátt í troðslukeppninni á næsta ári. Troðslukeppnin fer alltaf fram árlega, samhliða stjörnuleiknum sjálfum. LeBron hefur aldrei tekið þátt á sínum 10 ára ferli en hann sagði í gærkvöldi við Lisu Salters, fréttamann ESPN að hann íhugaði það á hverju ári.
James, sem að treður oft með glæsibrag í leikjum sagði: "Ég hugsa um þetta á hverju ári. Segðu Johnson að ég muni hafa samband við hann aftur." Þetta sagði James fyrir leik Miami Heat og New York Knicks. Heat vann þann leik, 99-93, og skoraði James 29 stig en Heat er með næst besta árangurinn í deildinni í vetur, rétt á eftir San Antonio Spurs.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook