Mánudagur, 4. mars 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

NBA | Magic Johnson heitir milljón á LeBron James

Mynd: Nordic Photos

Gamla körfuboltakempan, Magic Johnson, hefur heitið einni milljón dollara á LeBron James, leikmann Miami Heat, taki hann þátt í troðslukeppninni á næsta ári. James hefur aldrei tekið þátt í troðslukeppninni og eru stærstu stjörnurnar lítið að spá í henni. Margir vilja þó sjá kónginn sjálfan spreyta sig gegn öðrum troðurum, þar á meðal Johnson.

NBA deildin borgar, árlega, sigurvegara troðslukeppninnar 100.000 dollara en Johnon ætlar að tífalda þá upphæð. Hann sagði nefinlega ætla að borga sigurvegaranum (Hann trúir því að það verði James) 1 milljón dollara. "Gerðu það James, taktu þátt í troðslukeppninni. Ég fer á hana á hverju ári. Ég skal gefa þér milljón dollara. Milljón, frá Magic til James."

Þá voru fleiri körfuboltasérfræðingar sem biðluðu til Blake Griffin, leikmanns LA Clippers að taka þátt einnig en hann er þekktur fyrir kraftmiklar troðslur.