Mánudagur, 4. mars 2013 | Fréttir | frettir@sport.is | @sport_is á Twitter

NBA | Miami vann Knicks á útivelli | Ibaka sló Griffin í hreðjarnar | Myndband

Mynd: Nordic Photos

Miami Heat hélt áfram sigurgöngu liðsins í nótt en liðið vann 99-93 sigur á New York Knicks en leikurinn var háður í Madison Square Garden. LeBron James skoraði 29 stig í leiknum en kappinn tók líka 11 fráköst. Hjá Knicks var Carmelo Anthony stigahæstur með 32 stig. Miami stendur best að vígi í Austurdeildinni en liðið hefur unnið 43 leiki en tapað 14. New York Knicks kemur næst með 38 sigra en 22 töp.

LA Lakers er í ruglinu í Vesturdeildinni en liðið er með 30/30 sigurhlutfall sem er arfaslakt hjá þessu stórliði. Liðið vann Atlanta Hawks 99-98 í spennandi leik en Kobe Bryant skoraði 34 stig í leiknum og sigurkörfuna rétt fyrir leikslok. Í Vesturdeildinni er Spurs með 47-14 sigurhlutfall og svo kemur Oklohoma sem vann LA Clippers 108-104 í gærkvöldi en leikurinn var æsispennandi þar sem Clippers voru nálægt því að velgja OKC undir uggum en allt kom fyrir ekki.

Kevin Durant var eins og oft áður magnaður hjá OKC en hann skoraði 35 stig í leiknum. Það munaði litlu að Clippers nýttu sér steypuna í Serge Ibaka en hann fékk á sig óíþróttamannslega villu fyrir að slá í hreðjarnar á Blake Griffin undir lok leiksins sem skilaði Clippers þrist, vítaskotum og boltanum aftur. Ibaka virtist svo halda að dómararnir myndu breyta dómnum ef hann myndi tuða nógu mikið en að lokum dró Durant hann í burtu og bað hann vinsamlega að slaka á, sem hann gerði að lokum.

Leikir næturinnar:
New York 93-99 Miami
LA Clippers 104-108 Oklahoma
Washington 90-87 Philadelphia
Orlando 82-108 Memphis
Sacramento 119-83 Charlotte
Houston 136-103 Dallas
San Antonio 114-75 Detroit
Indiana 97-92 Chicago
LA  Lakers 99-98 Atlanta

Hérna má sjá myndband af Ibaka að lemja Blake greyið í punginn.