Þriðjudagur, 5. mars 2013 | Þráinn Guðbrandsson | thrainn@sport.is | á Twitter

NBA | Miami með fimmtánda sigurinn í röð | Úrslit næturinnar

Mynd: Nordic Photos

Dwayne Wade átti góðan leik fyrir Miami Heat í nótt sem vann sextán stiga sigur á Minnesota Timberwolves, 97-81. Dwayne Wade var bæði stigahæstur, með 32 stig, og gaf flestar stoðsendingar sem voru tíu. Lebron James var með flest fráköst eða tíu. Miami var með sjö stiga forskot í hálfleik, 50-43. Þriðja leikhlutann vann Minnesota með einu stigi, 20-19, og náði þannig að minnka forskot Miami í sex stig. Það breytti þó ekki miklu því Miami fann fjórða leikhlutan með tíu stigum, 28-18, og tryggði þar með sinn fimmtánda sigur í röð.

Milwaukee Bucks unnu nauman sigur á Utah Jazz eftir framlengdan leik, 109-108. Utah Jazz var hinsvegar með forskotið í hálfleik, 48-45, en átti ekki góðan leik í þriðja leikhluta. Milwaukee spilaði yfirburða vel og vann leikhlutan með þrettán stigum, 30-17. Utah gafst þó ekki upp og vann fjórða leikhlutan 34-24 og náði þannig að jafna leikinn í stöðuna 99-99 en Brandon Jennings skoraði þriggja stiga körfu fyrir Milwaukee þegar aðeins átta sekúndur voru eftir af leiknum. Milwaukee vann framlenginuna með aðeins einu stigi, 10-9. Monta Ellis skoraði fyrir Milwaukee þegar fjórtán sekúndur voru eftir af framlenginunni, sem gaf þeim þriggja stiga forskot, 109-106, hann var einnig stigahæstur í leiknum með 34 stig. Enes Kanter skoraði svo seinustu körfu leiksins fyrir Utah Jazz þegar rétt um sekúnda var eftir af framlenginunni og minnkaði muninn í 109-108 en það dugði ekki til.

Orlando Magic hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið í deildinni og hefur aðeins unnið, eftir nóttina, tvo af seinustu tíu leikjum. Þeir náðu þó sigri í nótt þegar þeir mættu New Orleans Hornets. Orlando var undir í hálfleik 46-36 en kom sér til baka í seinni hálfleiknum. Orlando unnu þriðja leikhluta 34-30 og svo fjórða leikhlutan með níu stigum, 35-26. Aron Affolo var stigahæstur hjá Orlando með 26 stig.

Úrslit næturinnar:

New York Knicks 102-97 Cleveland Cavaliers
Utah Jazz 108-109 Milwaukee Bucks
Orlando Magic 105 -102 New Orleans Hornets
Miami Heat 97-81 Minnesota Timberwolves
Atlanta Hawks 88-104 Denver Nuggets
Charlotte Bobcats 105-122 Portland Trailblazers
Toronto Raptors 118-125 Golden State Warriors