Miðvikudagur, 6. mars 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

Dominos-deild kvenna | Mögulega frestanir í kvöld

Mynd: Hilmar Þór

Heil umferð, eða fjórir leikir eru á dagskrá Domino’s deildar kvenna í körfuknattleik í kvöld. Lítið er eftir af mótinu og er spennan farin að magnast.

Skilaboð frá KKÍ:
Í dag er heil umferð á dagskrá í Domino´s deild kvenna og leikir í bikarkeppnum yngri flokka.
Vegna veðurs er verið að skoða hvort það þurfi að fresta einhverjum leikjum.
Nánari fréttir verða sendar síðar.

Snæfell, sem er í 2. sæti deildarinnar, getur sett mikla pressu á lið Keflavíkur með því að leggja Grindavík að velli kvöld. Grindavíkurstúlkur eru nýliðar í deildinni og sitja í sjöunda og næst neðsta sæti. Snæfell er aðeins tveimur stigum á eftir Keflavík (Keflavík á þó leik til góða) en þær leika við nágranna sína í Njarðvík í kvöld. Njarðvík, sem varð Íslands- og bikarmeistari í fyrra, hefur ekki leikið eins vel þetta árið. Keflavík þarf á stigunum að halda til þess að gefa ekki eftir í toppbaráttunni en Njarðvík er í 6. sæti, 6 stigum á eftir Haukum sem eru í 5. sæti.

Haukar fara í heimsókn á Hlíðarenda í kvöld þar sem þær leika við Valsstúlkur. Valskonur hafa verið í ágætismálum í vetur og sitja í 4. sæti, 4 stigum á eftir KR sem getur bara ekki hætt að vinna eftir komu Shannon McCallum í lið þeirra. Þær eru með 30 stig í 3. sætinu en þrátt fyrir það er ólíklegt að þær nái að stela 2. sætinu af Snæfell áður en yfir lýkur. Þær leika við botnlið Fjölnis í kvöld.

Leikir kvöldsins:
Kl. 19.15 Njarðvík – Keflavík
Kl. 19.15 Valur – Haukar
Kl. 19.15  Snæfell – Grindavík
Kl. 19.15 Fjölnir – KR