Miðvikudagur, 6. mars 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

NBA | Oklahoma sigraði Lakers | Úrslit næturinnar

Mynd: Nordic Photos

Aðeins þrír leikir voru á dagskrá NBA deildarinnar í körfuknattleik í gær. Boston Celtics vann sinn þriðja leik í röð þegar að þeir mættu nágrönnum sínum í Philadelphia 76ers. Avery Bradley var stigahæstur í liði Boston með 22 stig en það er það mesta sem hann hefur skorað í leik í vetur og gömlu kempurnar Paul Pierce og Kevin Garnett skoruðu 18 stig hvor. Þetta var 32. sigurleikur Boston í vetur en þeir hafa tapað 27. Leiknum lauk með 109-101 sigri Celtics en stigahæstur hjá Sixers var Thaddeus Young með 19 stig og 10 fráköst.

Oklahoma City Thunder vann þægilegan sigur á LA Lakers, 122-105. Lakers menn gerðu heiðarlega tilraun til þess að jafna leikinn þegar lítið var eftir en þeir höfðu elt allann leikinn. Þegar munurinn var sem minnstur, 5 stig, lokuðu Thunder vörn sinni og unnu að lokum 17 stiga sigur. Russell Westbrook átti enn einn stórleikinn og skoraði 37 stig en hjá Lakers var Kobe Bryant stigahæstur með 30 stig.

Úrslit næturinnar:

Philadelphia 76ers 101-109 Boston Celtics 
Oklahoma City Thunder 122-105  Los Angeles Lakers
Sacramento Kings 113-120 Denver Nuggets