Mánudagur, 15. mars 2010 | Steikt.is | steikt@sport.is

Fujifilm Z700 | Fyrsta myndavélin með gæludýra-finnara

Mynd: Fujifilm

Myndavélaframleiðendur reyna flest til að gera myndavélar sínar söluvænar. Nú hefur Fujifilm sett á markað nýja vél sem býr yfir þeirri náðargáfu að geta “fundið” gæludýr í rammanum til að það sé í fókus er smellt er af.

Það sem Fujifilm er að segja er að það sé miklu einfaldara að taka mynd af gæludýrum sem annars náðust ekki á mynd þar sem þau væri hlaupandi út og suður.

Vélin er komin á markað og selst ágætlega. Það er samt vert að benda á að eigendur hægfara dýra þurfa líklega ekki að nýta sér þessa nýju tækni.