Fimmtudagur, 18. mars 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Er Commodore 64 að koma aftur á markað? | Áttu Commodore leikjatölvu?

Er þessi á leið á markað? | Mynd: Netið

Hver man ekki eftir leikjatölvunum Commodore 64 og Sinclair Spectrum. Þessar vélar voru Playstation gamla tímans og fóru ansi margir klukkutímar í að sitja fyrir framan sjónvarpið með misgóða leiki í spilun en mest hékt undirritaður uppá fótboltaleik þar sem leikmennirnir voru eins og kubbar í laginu og hreyfðu sig eftir því og kappakstursleik sem hafði þann tilgang einan að keyra beint áfram án þess að gera mikið annað… Yndislegir tímar.

Eða þá að upplifa byltinguna að fá geisladrif við Commodorinn. Þá var maður kominn í góð mál og þurfti ekki lengur að spila leiki af kasettu. Diskadrif þýddi að viðkomandi væri að fullorðnast. Best var auðvitað að eiga leiki á kubb sem settur var aftan í vélina. Þá hlóðst leikurinn inn á innan við mínútu sem þótti ansi vel gert á þessum tíma.

Kjánaleg vél | Mynd: Sinclair Spectrum

Mikill rígur var á milli eigenda Commodore og Sinclair Spectrum, rígur sem mætti jafna við ríg milli notenda Mac og PC í dag. Ég var alltaf Commodore maður. Hló af notendum Sinclair Spectrum sem mér fannst litlar og ljótar með afbrigðum og þær voru “bara” 48K á meðan Commodore var jú 64K. Það mátti sem ekki mæla mikinn mun á vinnslugetu. Atari var bara drasl með kjánalegan stýripinna – miðað við Commodore-snilldina.

En dagar Commodore og Sinclair Spectrum liðu undir lok og við tóku aðrar tölvur. Einhvernveginn týndist tölvan mín í drasli og var líklega að lokum hent. Sem er sorglegt þar sem hennar er saknað sárt í dag.

Mynd: Netið

Leikirnir sem gáfu ótal margar skemmilegar stundir þóttu undir lokin orðnir hallærislegir og því fór sem fór. En nú væri ég til í að upplifa aftur Commodore-daganna og þá er tvennt í stöðunni. Eitt er að vonast til að orðrómurinn um að Commodre 64 sé aftur á leið á markað, ný og endurbætt. (Sjá mynd).

Hitt er að kalla á hjálp við að komast í slíka vél til að taka í próf til að birta hér á síðunni. Ef einhver á Commodore 64 þá er viðkomandi beðinn að senda tölvupóst á hilmar@sport.is með upplýsingum hvernig hægt sé að ná í viðkomandi. Ég lofa að skila henni aftur af prófunum loknum.

Ef hvorugt gerist þá heldur lífið áfram sinn vanagang en minningin um Commodore 64 mun lifa að eilífu – í hjartanu.

Hilmar Þór Guðmundsson | Commodore-64 nörd.

  • Facebook
  • Twitter
  • StumbleUpon
  • Digg
  • del.icio.us
  • email