Föstudagur, 19. mars 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Chili handsprengja

Nýjasta vopnið í stríðsheiminum er vægast sagt í óhefðbundnari kantinum. Vopnið er handsprengja sem er fyllt af heimsins sterkasta chili. Handsprengjan veldur ekki dauða en veldur tímabundinni blindu og öndunar erfiðleikum.

Mynd: Ananova.com

Sérfræðingar í indverska hernum fengu þessa snilldar hugmynd og notast við chili frá Bhut Jolokia héraðinu í Indlandi. Þar er, samkvæmt heimsmetabók Guinnes, ræktað sterkasta chili í heimi.

Chili handsprengjurnar eru einkar hentugar til að sporna við múgæsingi en geta einnig verið notaðar gegn hryðjuverkum.
“Vopnið getur verið notað til að fæla hryðjuverkamenn frá felustað sínum” sagði Dr. Srivastava sérfræðingur indverska hersins.

“Ef þeir koma ekki út þá munu þeir kafna”.

Það er spurning hvort íslenska lögreglan muni hefja notkun chili handsprengja í stað táragass þegar mótmæli fara úr böndunum.

  • Facebook
  • Twitter
  • StumbleUpon
  • Digg
  • del.icio.us
  • email