Media Group ehf

Media Group ehf. er fjölmiðla- og markaðsfyrirtæki sem leggur áherslu á íþróttatengt efni.  Media Group á og rekur einn vinsælasta íþrótta- og afþreyingavef landsins, Sport.is, og hefur haslað sér völl í  útgáfu- og markaðsmálum fyrir íþróttasambönd, íþróttafélög og hagsmunasamtök. Félagið hefur séð um útgáfumál fyrir mörg af stærstu íþróttafélögum landsins við góðan orðstír og aðstoðað við markaðssetningu félaga og samtaka, bæði til markaðar og í innra starf félaganna. Fyrirtækið var stofnað árið 2005.

Innan Media Group eru starfandi útgáfusvið, ljósmyndasvið, vefsvið og markaðssvið sem hvert hefur sínar áherslur.

Media Group ehf
Sími: 571 5050
Netfang: mediagroup@mediagroup.is

Skrifstofa Media Group ehf: Netfang: Staða: Beinn sími: Farsími:
Hilmar Þór Guðmundsson hilmar@sport.is Framkvæmdastjóri 571 5050 896 9696

 


Vefsvið
Vefurinn Sport.is hefur verið einn öflugasti íþrótta- og afþreyingarvefur landsins um árabil. Hann var upprunalega stofnaður sem Sportid.is, en nafninu var breytt í Sport.is árið 2001.  Sport.is hefur löngum verið með fjölsóttustu vefjum landsins og hefur hann áunnið sér gott orðspor og þykir koma umfjöllunarefni sínu á framfæri á ábyrgan og faglegan hátt.

Mikill fjöldi lesenda heimsækir síðuna í viku hverri, en áætlaður  heimsóknarfjöldi er á bilinu 40-50 þúsund (Google Analyctis).  Mikill meðbyr hefur verið með vefnum eftir uppfærslur og endurskipulagningu og hefur aðsóknin aukist jafnt og þétt.

Sportvarp – Þáttargerð á netinu
Sportvarpið á Sport.is og hefur fengið frábærar viðtökur hjá lesendum og nú áhorfendum Sport.is.  Fréttamenn Sport.is taka viðtöl eftir kappleiki og aðra íþróttaviðburði og eru þau sýnd í myndbandsformi á Sport.is.  Þá hefur Sportspjallið mælst vel fyrir, en þar sest íþróttafólk niður með Sportmönnum og ræðir íþróttirnar, lífið og tilveruna.  Sport.is vinnur nú að þáttagerð á netinu.

Nú þegar eru fjölmörg viðtöl komin til birtingar á Sport.is og má því segja að Sport.is / Media Group ehf teygi anga sína víða í fjölmiðlun, en fyrirtækið heldur úti vinsælum íþróttavef, sér um útgáfu tímarita, sýnir vef-sjónvarp, kemur að dagskrárgerð í útvarpi og markaðsmiðlun fyrir íþróttafélög og sérsambönd.

Útgáfusvið
Útgáfusviðið  sérhæfir sig í útgáfustarfsemi fyrir félagasamtök og íþróttafélög. Meðal verkefna sem Media Group hefur unnið eru tímarit fyrir FH, KR, Keflavík, Fjölni og Hauka sem og ýmis rit fyrir sérsambönd eins og Handknattleikssamband Íslands, Körfuknattleikssamband Íslands og Knattspyrnusamband Íslands.
Félagið hefur einnig komið að annarri útgáfu og vinnslu, t.d. veggspjalda, borðspjalda og annars kynningarefnis. Á útgáfusviði starfa hönnuðir, umbrotsmenn, blaðamenn og ljósmyndarar sem allir hafa mikla reynslu af útgáfustörfum.

Hér má skoða má blöð sem Media Group hefur unnið og gefið út.

Markaðssvið
Markaðssvið sérhæfir sig í almannatengslum fyrir hagsmunasamtök, fyrirtæki og einstaklinga.  Öflugt starfsfólk markaðssviðs finnur heildarlausnir fyrir þá sem vilja kynna vörur eða þjónustu og vekja áhuga og athygli.
Markaðssvið Media Group tekur að sér verk á hinum ýmsu stigum, allt frá frumstiginu (hugmyndavinna, uppsetning og framleiðsla), til síðari stiga (uppfærsla og endurnýjun fyrirliggjandi efnis) og fylgir verkinu til loka.

Media Group býður upp á öfluga og ferska auglýsingagerð.  Fyrirtækið framleiðir auglýsingar og annað efni jöfnum höndum fyrir sjónvarp, útvarp og prentmiðla.
Hjá Media Group starfa reynslumiklir blaðamenn, textagerðarfólk, ljósmyndarar, markaðsfólk, hönnuðir og umbrotsmenn sem geta auðveldað fyrirtækjum að koma sér og vörum eða þjónustu sinni á framfæri.
Starfsmenn Media Group hafa á löngum og farsælum ferli myndað gott tengslanet, sem m.a. teygir sig inn á fjölmiðla og markaðsfyrirtæki, og þetta net nýtist vel við kynningar, markaðssetningu og athyglisvaka.

Ljósmyndasvið
Ljósmyndasvið sér um alla almenna ljósmyndun fyrir fyrirtæki, hagsmunasamtök eða aðra þá sem þurfa á slíkri þjónustu að halda. Hjá félaginu starfa menntaðir ljósmyndarar hoknir af reynslu, en félagið býður uppá sérstæðar heildarlausnir fyrir fyrirtæki.

Media Group gerir verðtilboð í öll verkefni, stór og smá, og hefur m.a. tekið að sér eftirfarandi verkefni:

  • Blaðamannafundir
  • Myndir í fréttabréf
  • Myndir til birtingar í fjölmiðlum
  • Auglýsingamyndir
  • Myndir úr starfsemi
  • Andlitsmyndir af starfsmönnum á vef eða í prent
  • Árshátíðir
  • Mannfögnuðir
  • Veislur

Media Group ehf. býr að stúdíóaðstöðu þar sem hægt er að mynda fólk og hluti. Fyrirtækið á ennfremur stóran myndabanka sem hægt er að kaupa myndir úr.

Þar má m.a. finna:

  • Landslagsmyndir
  • Borgarmyndir (Ísland og erlendar borgir)
  • Myndir úr atvinnustarfsemi
  • Stemningsmyndir
  • Myndir af ýmsum hlutum
  • Árstíðarmyndir
  • Íþróttamyndir

Sendið tölvupóst á hilmar@mediagroup.is eða hringið í síma 571 5050 til að fá nánari upplýsingar um myndasafn Media Group ehf.