Eldsnöggu stúlkurnar DeeDee Trotter, Allyson Felix, Francena McCorory og Sanya Richards-Ross skipa 4×400 metra sveit Bandaríkjanna sem vann ansi öruggan sigur í greininni í dag, á næst síðasta keppnisdegi Ólympíuleikanna í London.
Sigurtíminn var 3:16,87 mínútur, rúmum þremur sekúndum á undan rússnesku sveitinni sem lenti í 2.sæti og rúmum fjórum sekúndum á undan sveit Jamaíka sem kom þriðja í mark.
4×400 metra hlaup kvenna er mögnuð grein fyrir þær sakir að heims- og Ólympíumet Sovétríkjanna, frá Ólympíuleikunum í Seúl 1988, stendur enn óhaggað 24 árum síðar en það er ansi óvanalegt í spretthlaupskeppnum nútímans, að þessi met standi svo lengi.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook