
Halldór Orri Björnsson hefur kveðið niður allar sögur um að hann sé á förum frá félaginu en hann framlengdi í dag samningi sínum við Stjörnuna. Samningurinn er til tveggja ára en Halldór var orðaður við félög eins og Val og KR á undanförnum dögum. Það vakti athygli að hann var meðal leikmanna í Lengjubikarnum í kvöld þegar Stjarnan mætir KR en það er þá komin útskýring á því.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook