Þriðjudagur, 19. febrúar 2013 | Fréttir | frettir@sport.is | @sport_is á Twitter

Pepsi-deild karla | Bjarni Ólafur kominn aftur í Val

Mynd: Valur.is

Bjarni Ólafur Eiríksson hefur gengið frá samningi við uppeldisfélag sitt, Val.  Bjarni Ólafur, sem var m.a. valinn íþróttamaður Vals árið 2005, hefur á ferli sínum einnig spilað sem atvinnumaður með Silkeborg á árunum 2005-2007 og með Stabæk í Noregi síðustu þrjú ár þar sem hann lék 87 leiki og var einn að lykilmönnum liðsins.

Samningurinn er til þriggja ára og ætti Bjarni að vera komin með leikheimild næstu daga.

Viðtal við Bjarna hefði fylgt fréttinni en Valur boðaði ekki helstu fjölmiðla á fundinn.