Brynjar Björn Gunnarsson, leikmaður Reading, er laus frá félaginu og mun hann leika með KR í sumar. Hann staðfesti þetta við Mbl.is í kvöld. Brynjar er á heimleið eftir að hafa leikið í atvinnumennsku lengi en hann er búinn að semja við KR þó ekki sé búið að skrifa undir samninginn sjálfan.
Brynjar lék með KR á sínum tíma en fór svo í atvinnumennsku þar sem hann lék með Vålerenga , Örgryte IS, Stoke, Nottingham Forest, Watford og Reading. Hann spilaði með KR frá árinu 1995-1997 en þá for hann til Vålerenga.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook