Föstudagur, 1. mars 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

Pepsi-deildin | Viðar Örn leikur í Lautinni í sumar | Fylkismenn halda áfram að styrkja sig

Fylkismenn styrkja sig. Mynd: Hilmar Þór

Fylkir úr Árbænum halda áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Pepsi deild karla í knattspyrnu sem hefst eftir rétt rúma 2 mánuði. Í gærdag skrifaði framherjinn efnilegi, Viðar Örn Kjartansson, undir samning við félagið. Hann kemur til Fylkis frá uppeldisfélagi sínu, Selfoss.

Viðar hefur leikið með Selfoss og ÍBV undanfarin ár og vakið verðskuldaða athygli. Hann er ekki fyrsti maðurinn sem Árbæingar fá til sín en fyrr í vetur gengu þeir  Pablo Punyed, Tryggvi Guðmundsson, Sverrir Garðarsson  og Kristján Páll Jónsson, allir í raðir Fylkis. Þá eru þeir Pól Justinussen og Heiðar Geir Júlíusson að æfa með Fylki þessa dagana og gætu þeir fengið samning hjá félaginu.