Laugardagur, 2. mars 2013 | Fréttir | frettir@sport.is | @sport_is á Twitter

Pepsi-deild karla | Kristján Hauksson yfirgefur Fram

Kristján Hauksson, fyrirliði Fram, er hættur að leika með félaginu en hann og stjórn knattspyrnudeildar Fram náðu samkomulagi um starfslok Kristjáns. Svo virðist sem þessi ákvörðun hafi ekki verið gerð í góðu en Brynjar Jóhannesson, formaður stjórnar knattspyrnudeildar, orðaði hlutina þannig að "Við ræddum við hann og tókum sameiginlega ákvörðun um að enda þetta núna," við Morgunblaðið.

Samkvæmt Brynjari þá er Kristján ekki á förum til annars félags en hann sé í það minnsta hættur að leika með Fram.