Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við bandarísku leikmennina Kayla Grimsley og Tahnai Annis sem léku með Þór/KA síðasta sumar um að þær verði áfram í herbúðum Íslandsmeistaranna. Auk þess þá hefur náðst samkomulag við Mateju Zver og mun hún bætast við í hópinn og er ljóst að Íslandsmeistararnir koma sterkir til leiks í sumar.
Þær Kayla Grímsley og Tahnai Annis léku báðar stór hlutverk í liði Þórs/KA þær léku hvor um sig 21 leik með liðinu 2012 bæði í deild og bikar. Kayla skoraði 5 mörk í þeim leikjum en Tahnai Annis 9.
Slóvenski leikmaðurinn Mateja Zver þekkir vel til liðsins enda á hún að 67 leiki að baki með liðinu og í þeim leikjum hefur hún skorað 56 mörk. Mateja spilaði fyrst með liðinu 2008 og lék níu síðustu leiki tímbilsins og í þeim leikjum skoraði hún 10 mörk. Næstu þrjú tímabil þ.e. 2009-2011 lék hún með liðinu alls 57 leiki og skoraði í þeim 46 mörk.
Að sögn Nóa Björnssonar úr leikmannaráði kvenna koma bandarísku leikmennirnir Kayla og Tahnai til landsins 20. mars en Mateja Zver kemur mánuði síðar eða um 26. apríl.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook