Föstudagur, 1. mars 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

Afmælisbörn dagsins | Guðmundur Kristjánsson og fleiri

Til hamingju með afmælið Guðmundur. Mynd: Sport.is

Nokkrir þekktir íþróttamenn eiga afmæli þann 1. mars, sem er einmitt í dag. Fyrst ber að nefna Guðmund Kristjánsson, atvinnumann í knattspyrnu sem leikur með IK Start í Noregi. Þessi fyrrum leikmaður Breiðabliks hefur leikið 5 landsleiki fyrir Íslandshönd og á framtíðina fyrir sér enda aðeins 24 ára gamall í dag. Þá er Karólína Bæhrenz, hornamaður hjá handboltaliði Vals, 25 ára gömul í dag.

 

Martin O’Neill, fyrrum stjóri Aston Villa og núverandi stjóri Sunderland, fagnar afmæli sínu í dag. Þessi umdeildi stjóri, sem gerði garðin frægan sem leikmaður hjá Nottingham Forest, er  61 árs í dag.

Þá á mexíkóski landsliðsmaðurinn, Carlos Vela, einnig afmæli í dag. Hann er jafn gamall Guðmundi, eða 24 ára í dag. Hann skaust fram á sjónarsviðið fyrir 8 árum síðan þegar að Arsene Wenger keypti hann til Arsenal, þá aðeins 16 ára gamlan. Hann náði aldrei að festa sig í sessi hjá Lundúnarliðinu og hefur flakkað um á láni síðustu ár. Nú í sumar samdi hann hinsvegar til frambúðar við Real Sociadad á Spáni og leikur þar við ágætis orðstír.