Mánudagur, 4. mars 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

Afmælisbörn dagsins | Dalglish, Donovan og "El Burrito"

Mynd: Nordic Photos

Þá er komið af afmælisbörnum dagsins hér á Sport.is en í dag eru þrír góðir menn sem fagna mismunandi háum aldri. Fyrstur á blaði er Kenny Dalglish, fyrrum leikmaður og stjóri Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Dalglish ætti ekki að þurfa að kynna fyrir Sport.is en kappinn verður 62 ára á morgun. Hann er fæddur í Skotlandi og lék lengi vel með Celtic þar í landi en eftir að hann fluttist til Englands þá lék hann með Liverpool, út sinn feril. Árið 1985 tók hann við starfi knattspyrnustjóra, ásamt því að leika sjálfur. Hann stjórnaði síðar á ferlinum liðum eins og Blackburn, Celtic og Newcastle. Loks tók hann aftur við Liverpool á síðustu leiktíð en lét fljótlega af störfum. Hann er goðsögn í augum margra knattspyrnuaðdáanda, þá sérstaklega Liverpool manna.

Bandaríski knattspyrnumaðurinn, einn þeirra besti, Landon Donovan, er 31 árs gamall í dag. Hann leikur með LA Galaxy í heimalandinu en þeir hafa orðið MLS meistarar tvö ár í röð. Á sínum farsæla ferli hefur Donovan leikið með Bayern Leverkusen, Bayern München, Everton og fleiri liðum. Þá hefur hann leikið um 150 landsleiki fyrir landslið Bandaríkjanna.

Loks á Ariel nokkur Ortega afmæli í dag. Hann er argentínskur og er 39 ára gamall í dag. Hann lék með fjölmörgum liðum á sínum langa ferli, lengst af River Plate í heimalandinu. Hann lék tæplega 90 landsleiki fyrir argentínska landsliðið og skoraði í þeim 17 mörk. Hann hefur eitt skemmtilegasta viðurnefni knattspyrnusögunnar eða "El Burrito". Það myndi þýðast á ensku sem "Little Donkey" eða litli asninn.

Sport.is óskar þessum fagmönnum til hamingju með daginn.