Þá er iPhone 4 loksins lentur á klakann, eða eftir hefðbundnum leiðum en hann hefur verið fáanlegur smyglaður hingað til. En Vodafone er byrjað að selja hann með ábyrgð og kostar síminn litlar 178.900 krónur. Hægt er að dreifa greiðslunum í 12 mánuði.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um iPhone en flestir vita án efa nægilega mikið um símann.
Þrátt fyrir háan verðmiða þá er ekki ólíklegt að síminn seljist upp hjá Vodafone í dag en margir hafa beðið með eftirvæntingu eftir þessum snjallsíma.



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook