Fimmtudagur, 26. ágúst 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Nýja íslenska IKEA-auglýsingin var skotin á Canon EOS 5D Mark II

Við upptökur á augýsingunni

Ikea var að senda frá sér nýja bækling en það er nánast hægt að stilla tímatal landsins eftir þessum viðburði. Á sama tíma er byrjað að sýna auglýsingu í sjónvarpi en það er enginn annar en markmaðurinn knái, Hannes Þór Halldórsson hjá Fram, sem leikstýrir auglýsingunni. Það skemmtilega við auglýsinguna er að hún er skotin á Canon EOS 5D Mark II vélina en kvikmyndagerðarmenn eru byrjaðir að nota þessa vél og Canon 7D vélina mikið til að taka upp auglýsingar og kvikmyndaefni.

Nú er búist við því að Canon kynni til sögunnar Canon EOS 1D Mark IV-S vél á Foto-kina en hún verður kominn með upptökueiginleikunum sem finna má á 5D Mark II, 7D og 1D Mark IV.

Eins og sjá má á auglýsingunni þá þarf ekki stórar fyrirferðamiklar vélar til að skjóta svona efni en gæðin úr þessum vélum eru lygilega góð.

Smelltu hérna til að sjá auglýsinguna.