Mánudagur, 30. ágúst 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Vel búinn iBenz

Mynd: Netið

Þessi Mercedes Benz S týpa er ansi vel búinn eins sjá má. Bíllinn sjálfur er lítil 750 hestöfl og ætti því að komast á áfangastað. En það sem er inní honum er ekkert til að grenja yfir.

Hann er með innbyggðum iPad fyrir báða farþega sem og lyklaborði. Þá er Magic Mouse til notkunar á milli sætanna sem og iPod og heyrnartól.

Það er ekki nóg. Það kemur 15″ skjár niður úr loftinu til að horfa á kvikmyndir en það er eitt stykki Mac Mini í skottinu til að geyma allt efnið á. Að sjálfsögðu eru líka skjáir í sætunum, ef það skyldi ekki vera nóg að hafa alt hitt.

Þessi glæsibifreið kostar litlar 15 milljónir, sú ódýrasta, og uppúr. Spurning um að kalla hann bara iBenz.