Miðvikudagur, 1. september 2010 | Tól & tæki | tol@sport.is

Apple | iPod Nano kominn með snertiskjá

Apple skellti á markað frábærri nýjun á iPod Nano í dag en hann er kominn með snertiskjá. Það er frétt útaf fyrir sig en tækið er pínkulítið og því kemur á óvart að Apple skuli hafa farið þessa leið.

Tækið er búið “Genious”-tækninni sem lætur spilarann setja lög sem passa við lagalista sem valinn er. Tækið er með útvarpi eins og eldri Nano-tækin og hann kemur með Nike+ forritinu sem hentar gríðarlega vel fyrir þá sem nota tækið til æfinga.

Snilldargræja!