Miðvikudagur, 1. september 2010 | Tól & tæki | tol@sport.is

Apple | iPod Touch = iPhone 4 án síma

iPod Touch 2010 - Já takk

iPod Touch fékk allsvakalega yfirhalningu af tæknideild Apple en ný uppfærsla af iPod Touch skartar ansi mögum nýjungum. Það má segja að þetta sé iPhone 4 án þess að hægt sé að hringja úr honum.

En tækið er komið með A4 örgjörvann sem iPhone 4 skartar og iOS 4.1 stýrikerfinu. Hann er með 720p HD myndbandsupptöku, Face Time hugbúnaðinum og 3-Axis Gyro.

Þá er hann orðinn miklu þynnri en hann var og léttari. Það munu margir án efa vilja uppfæra núverandi iPod Touch fyrir þessa snilld en hann mun kosta frá 229 dollara uppí 399 dollara. Hingað kominn með kjánatollum og virðisauka verður hann vafalaust dýrari en húsvagn.