Miðvikudagur, 1. september 2010 | Tól & tæki | tol@sport.is

Apple | Nýr iPod Shuffle ásamt öðru blandi í poka

iPod Shuffle árgerð 2010

Í dag var kynntur til sögunnar nýr iPod Shuffle sem er hefur fengið smávægilega andlitslyftingu. Hann er kominn með takka á ný en millieintak hljómspilarans var ekki með takka og þurfi þá að nota heyrnartól með fjarstýringu til að hann virkaði sem skyldi.

Það má því nota hvaða heyrnartól sem er og verður það að teljast gáfulegt framfararskref hjá Apple. Þá geturðu sett inná hann lagalista (Playlist) en spilarinn ku geta talað við þig og sagt þér hvaða lag sé í gangi. Gaman að því.

Spilarinn er litríkur með eindæmum en hann fæst í fimm litum.