Boltagáttin er nýtt smáforrit sem er komið út fyrir Windows Phone-síma þar sem hægt er að fylgjast með því sem er að gerast í fótboltanum. Þetta smáforrit nær í gögn á helstu fjölmiðla hérlendis og birtir með þægilegum og einföldum hætti í lista sem hægt er að lesa úr eða sía frekar niður á þær fréttir sem maður vill fylgjast með.
Boltagáttin er að ná í fréttir frá Fotbolti.net, ruv.is, mbl.is, Sport.is, visir.is og 433.is.
Hægt er að nálgast app-ið inn í Windows Store eða með því að smella hér. Þess má geta að Boltagáttin er í boði fyrir Windows Phone 7.5 og Windows Phone 8-síma.
Það er Ægir Laufdal Traustason sem hefur veg og vanda að þessu frábæra app-i.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook