Fréttaljósmynd ársins 2012 í Danmörku hefur vakið mikið umtal enda gríðarlega áhrifamikil mynd. Það var ljósmyndarinn Marie Hald sem tók myndina sem er af vændiskonunni Bonnie en hún er að sinna "vinnu" sinni á myndinni. Það er vændiskaupandi sem er að stunda kynlíf með Bonnie sem virðist tóm og fjarlæg þegar myndin er tekin.
Myndin hefur vitanlega vakið upp umtal um vændi og þá staðreynd að vændi er löglegt í löndum eins og Danmörku. Það virðist fátt sameiginlegt með athöfnunum á myndinni og eðlilegu kynlífi en Bonnie virðist ekki hafa mikla ánægju af að stunda þessa iðju.
Í það minnsta hafa fjölmargir beinlínis lesið það í myndina að þessi iðja eigi ekki rétt á sér. Rökin fyrir því að vændi sé ekki ólöglegt séu sú að ríkisvaldið vilji frekar hafa vændi opinbert svo hægt sé að það sé ekki grasserandi í undirheimunum þar sem mansal gæti orðið mun meira vandamál.
En myndin segir meira en þúsund orð.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook