Laugardagur, 2. mars 2013 | Tól & tæki | tol@sport.is | @tologtaeki á Twitter

Google kynnir formlega Chromebook Pixel

Google kynnti nú á dögunum formlega Chromebook Pixel, fyrstu Chrome-tölvuna undir merkjum Google. Upplýsingar um þessa tölvu láku út fyrir stuttu síðan í myndskeiði þar sem tölvan birtist og voru uppi spurningar um hvort þetta væri leki eða snilldarlega gerð eftirlíking.

Nú virðist vera sem að um leka hafi verið að ræða því Google hefur formlega kynnt Chromebook Pixel. Þessi tölva er með 12,85 tommu snertiskjá með einstaklega öflugri upplausn, 4GB vinnsluminni, Intel i5-örgjörva sem tvíkjarna 1,8 GHz, Bluetooth og Wifi ásamt því að vera með 32GB SSD-disk og aðgang að 1TB Google Drive-skýdrifi í þrjú ár án endurgjalds.

Hægt er að fá LTE-útgáfu af þessari tölvu sem kemst þá í sambandi í gegnum 4G-kerfi og er sú útgáfa með 64GB SSD-disk.

Tölvan sem slík lítur stórkostlega út og greinilegt að Google hefur lagt mikið kapp á að vanda vel til verks með þessa græju sína.

Skiptar skoðanir eru um verðið á tölvunni sjálfri en hún kostar 1299 dollara beint frá Google. Í upphafi þegar Eric Schmidt, stjórnarformaður Google, kynnti Chrome-stýrikerfið og hugmyndafræðina á bakvið Chromebook-tölvurnar að þá áttu þetta að vera einfaldar og meðfærilegar tölvur sem hægt væri að fá á sanngjörnu verði.

Chrome-stýrikerfið er í grunninn tengt við gagnaský Google og er því að miklu leyti að stóla á að vista gögn, forrit og annað sem maður notar dags daglega á skýdrifi í stað þess að geyma allt þetta á hörðum disk í tölvu. Hugmyndin er að notendur geti skráð sig inn á hvaða Chromebook-tölvu sem er og fengið þá upp öll sín gögn og forrit í gegnum Netið.

Hinsvegar hefur Chromebook-hugmyndinafræðin ekki náð sérstöku flugi og notendur, hvort sem það eru hefðbundnir neytendur eða fyrirtæki, hafa ekki mikla trú á svona mikilli og djúpri skýtengingu með öll sín gögn. Af þeim sökum hafa þeir sem hafa fengið sér Chromebook-tölvu oftar en ekki haft aðra hefðbundna Windows-tölvu með í farteskinu og hefur það gengið þar sem þær Chromebook-tölvur sem hafa komið fram til þessa hafa verið í ódýrari kantinum.

Hinsvegar er þessi dýri verðmiði á Chromebook Pixel það hár að hann er farinn að keppa við tölvur á borð við Macbook Air frá Apple. Eins og segir í einni umsögninni þá ættu allir að vilja Chromebook Pixel en það ætti hinsvegar enginn að kaupa sér hana.

Hægt er að kynna sér og jafnvel panta Chromebook Pixel með því að smella hér en Ísland er sem fyrr ekki inn á lista Google yfir þau lönd sem geta keypt tæki beint af þeim.