Mánudagur, 4. mars 2013 | Fréttir | frettir@sport.is | @sport_is á Twitter

HTC Tiara – nýr Windows Phone-sími á leiðinni frá HTC?

Mögulega er HTC með nýjan Windows Phone-síma á teikniborðinu sem er væntanlegur í sölu á næstunni. Síminn sem hefur vinnuheitið HTC Tiara mun að öllum líkindum falla á milli HTC 8X og HTC 8S þegar það kemur að eiginleikum og væntanlegu verði símans.

Samkvæmt upplýsingum sem hafa lekið út á Netið þá mun HTC Tiara vera með 1,2 GHz tvíkjarna örgjörva frá Snapdragon, 4,3 tommu skjá, 1GB í vinnsluminni og 8GB í geymsluminni sem verður líklegast hægt að stækka með microSD-minniskorti.

Myndavélin verður 8 megapixlar en rafhlaðan verður ekki nema 1800 mAh. Hinsvegar er líklegt að þessi sími muni keyra á næstu útgáfu af Windows Phone 8-stýrikerfinu eða réttara sagt á næstu uppfærslu sem í boði verður sem hefur verið nefnd GDR2. Lítið er vitað hvað verður í boði í þessari uppfærslu og var jafnvel talið að Microsoft myndi vera með einhverja kynningu á þessari uppfærslu á MWC 2013 en líkt og með flesta aðra sem hafa lagt leið sína á ráðstefnuna þetta árið að þá er lítið um stórsprengjur inn á markaðinn núna og greinilegt að framleiðendur eru farnir að einblína mun frekar á sínar eigin kynningar þegar þeim hentar.

Talið er að HTC Tiara muni koma í sölu um miðjan maí.