Mánudagur, 4. mars 2013 | Tól & tæki | tol@sport.is | @tologtaeki á Twitter

Photoshop Touch nú fáanlegt fyrir snjallsíma

Adobe hefur sent frá sér Photoshop Touch fyrir snjallsíma. Photoshop Touch hefur verið í boði fyrir iPad og Android-spjaldtölvur undanfarna mánuði en nú hefur Adobe sent frá sér snjallsímaútgáfuna af þessu smáforriti og er hægt að nálgast þessa útgáfu fyrir iPhone og Android-síma.

Með Photoshop Touch er hægt að vinna með marglaga myndaskrár allt að 12 megapixlar að stærð og hægt að gera ýmsar kúnstir með myndirnar líkt og verið hefur hægt í Photoshop fram til þessa.

Um er að ræða sérstaka snjallsímaútgáfu sem kostar 4,99 dollara en spjaldtölvuútgáfan er sérstakt smáforrit sem þarf að hlaða niður og kostar það 9,99 dollara.