Vefurinn Sport.is hefur verið einn öflugasti íþrótta- og afþreyingarvefur landsins um árabil. Hann var upprunalega stofnaður sem Sportid.is, en nafninu var breytt í Sport.is árið 2001. Sport.is hefur alla tíð verið með fjölsóttustu vefjum landsins og hefur hann áunnið sér gott orðspor og þykir koma umfjöllunarefni sínu á framfæri á ábyrgan og faglegan hátt.
Mikill fjöldi lesenda heimsækir síðuna í viku hverri, en áætlaður heimsóknarfjöldi er á bilinu 20-25 þúsund. Þegar EM í Austurríki var þá fór heimsóknarfjöldinn mest í 39.885 lesendur á einni viku. Mikill meðbyr hefur verið með vefnum eftir uppfærslur og endurskipulagningu og hefur aðsóknin aukist jafnt og þétt.
Sportvarp – nýjasta afurð Media Group ehf
Nýlega hófust vefsjónvarpsútsendingar á Sportvarpi á Sport.is og hafa viðtökur farið fram úr björtustu vonum. Fréttamenn Sport.is taka viðtöl eftir kappleiki og aðra íþróttaviðburði og eru þau sýnd í myndbandsformi á Sport.is. Innan tíðar verða leikir og viðburðir sendir út beint á Sport.is.
Nú þegar eru fjölmörg viðtöl komin til birtingar á Sport.is og má því segja að Sport.is / Media Group ehf teygi anga sína víða í fjölmiðlun, en fyrirtækið heldur úti vinsælum íþróttavef, sér um útgáfu tímarita, sýnir vef-sjónvarp, kemur að dagskrárgerð í útvarpi og markaðsmiðlun fyrir íþróttafélög og sérsambönd.
Samkvæmt markaðshópskönnum sem gerð var fyrir vefinn kom í ljós að sterkasti markaðshópurinn eru karlmenn á aldrinum 16-40 ára, en lesendur eru allt frá 10 ára gamlir og upp úr.
Ábyrgðarmaður Sport.is er Hilmar Þór Guðmundsson.
Höfuðstöðvar Media Group/Sport.is eru að Laugavegi 66, 2.hæð.
| Ritstjórn: | Netfang: | Staða: |
| Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is | Framkvæmdastjóri |
| Snorri Sturluson | snorri@sport.is | Ritstjóri |
| Ragnar Vignir | ragnar@sport.is | íþróttafréttamaður |
| Bergur Þ. Steingrímsson | bergur@sport.is | íþróttafréttamaður |
| Anton Ingi Leifsson | anton@sport.is | íþróttafréttamaður |
| Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is | íþróttafréttamaður |
| Þorsteinn Haukur Harðarson | thorsteinn@sport.is | íþróttafréttamaður |
| Ljósmyndarar: | ||
| Guðmundur Lúðvíksson | mummi@sport.is | Ljósmyndari |
| Indriði Stefánsson | indridi@sport.is | Ljósmyndari |
| Kristján Orri Jóhannsson | kristjan@sport.is | Ljósmyndari |
| Björgvin Óskarsson | bjorgvin@sport.is | Ljósmyndari |
| Aron Wei Quan | wei@sport.is | Ljósmyndari |
| Sævar Geir Sigurjónsson | sport@sport.is | Ljósmyndari |
| Merki félagsins | PNG | |
| Sækja PNG | Sækja PDF | |
![]() | Sækja PNG | Sækja PDF |
| Sækja PNG | Sækja PDF | |





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook